Heiða Björk P. Jósefsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem mannauðs- og launafulltrúi hjá Rangárþingi ytra. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og hefur yfir 20 ára fjölbreytta reynslu úr fjármála- og stjórnsýslugeiranum.
Heiða starfaði lengst af hjá Fjármálaeftirlitinu og síðar Seðlabanka Íslands, þar sem hún sinnti meðal annars eftirliti með banka- og lífeyrismarkaði, vettvangsathugunum og fjárhagslegri áhættugreiningu. Á síðustu árum sínum hjá SÍ gegndi hún starfi launafulltrúa
Undanfarið hefur Heiða starfað hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, þar sem hún hefur veitt ráðgjöf og þjónustu á sviði lífeyrismála. Þá hefur Heiða einnig reynslu af bókhaldi, endurskoðun og uppgjörsvinnu frá störfum sínum hjá Ríkisendurskoðun og PricewaterhouseCoopers.
Heiða Björk hefur lokið BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundar nú meistaranám í hagnýtri siðfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt lokið námi í verkefnastjórnun og verðbréfamiðlun auk fjölmargra námskeiða tengdum stjórnsýslu, fjármálaeftirliti og samskiptum.
Heiða Björk býr yfir sterkri greiningarhæfni og góðri samskiptakunnáttu, er skipulögð og hefur víðtæka reynslu af krefjandi verkefnum og opinberri stjórnsýslu.
Við bjóðum Heiðu velkomna til starfa