Heitavatnslaust á Hellu í dag

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust á stóru svæði á Hellu í dag, þriðjudaginn 3. nóvember frá kl. 13:30 til 16:30.

Veitur biðja íbúa og aðra notendur þjónustunnar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Nánari upplýsingar má finna á vef Veitna, veitur.is.

Þjónusturáðgjöf Veitna er opin virka daga kl. 9:00–16:00 og neyðarsími er opinn allan sólarhringinn í síma 516 6161.