Vegna vinnu Landsnets við háspennuvirkið á Hellu verður rafmagnslaust í Rangárþingi ytra aðfaranótt þriðjudagsins 25. ágúst. Rafmagnsleysið hefur áhrif á dælustöðvar Veitna og verður því lokað fyrir heitt vatn í sveitarfélaginu frá kl. 01:10 til 05:10.
Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að það geti tekið einhvern tíma að koma kerfinu aftur að fullu í gang eftir að rafmagn kemst á og því sé ekki víst að heitt vatn verði komið á alls staðar fyrr en undir morgun.
Þetta gæti haft áhrif á opnun sundlaugarinnar á Hellu þriðjudagsmorgun. Staðan verður metin í fyrramálið og upplýsingar veittar ef breyting verður á opnun.
Íbúum er bent á að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana á meðan lokunin stendur yfir til að draga úr hættu á slysum eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendur eru jafnframt hvattir til að huga að innanhússkerfum.
Nánari upplýsingar um lokunina og svæðið sem hún nær til má finna á korti Veitna.