Mynd tekin af www.veitur.is
Mynd tekin af www.veitur.is

Heitavatnslaust í Rangárþingum og Ásahreppi - 14. febrúar.

Vegna rafmsagnsleysis hjá RARIK er engu heitu vatni dælt frá Laugalandi og Kaldárholti þar sem framleiðsla heits vatns fyrir Rangárveitur á sér stað. Rangárveitur þjóna Rangárþingi ytra og eystra og Ásahreppi, þ.m.t. þéttbýliskjörnunum Hellu, Hvolsvelli og Gunnarsholti. Lágur þrýstingur eða heitavatnsleysi er nú á öllu svæðinu. Fólki er bent á að hafa glugga lokaða og dyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að halda hita á húsum sínum. 

Þegar rafmagn kemur aftur á má búast við að töluverðan tíma taki að ná aftur upp þrýstingi í hitaveitunni. Íbúar eru hvattir til að fara afar vel með heita vatnið á meðan á því stendur svo það gangi sem hraðast fyrir sig.

Orðsending frá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps:

Truflanir geta verið á afhendingu á köldu vatni í Landsveit og Holtum vegna rafmagnsleysis.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?