Af vef Kvikmyndasafns Íslands - Fólk í skoðunarferð að Heklugosi 1947
Af vef Kvikmyndasafns Íslands - Fólk í skoðunarferð að Heklugosi 1947

 

Á vef Kvikmyndasafns íslands er sífellt verið að bæta nýju efni og nú nýverið var efni eftir Kjartan Ó. Bjarnason bætt í safnið. 

Þar er einnig kvikmynd sem Kjartan gerði fyrir Rangæingafélagið árið 1947 en Kjartan var ráðinn af félaginu til að gera kvikmynd um Rangárvallasýslu.

Framleiðsla myndarinnar gekk hægt og illa og virðist sem hún hafi ekki verið kláruð. Elsta efnið er frá Heklugosinu árið 1947 en auk þess má sjá landbúnað í Rangárvallasýslu um miðja öldina og margt fleira. 

Kjartan Ó. Bjarnason var fyrsti Íslendingurinn til að gera kvikmyndagerð að aðalstarfi þegar hann hætti sem prentari árið 1945. Kjartan skyldi ekki eftir sig margar fullbúnar kvikmyndir með titlum. Hann fluttist til Danmerkur og aflaði sér tekna með því að ferðast um Danmörku, og víðar, þar sem hann sýndi kvikmyndir frá Íslandi og talaði yfir þær. Þá fór hann margar sýningarferðir um Ísland en þær nýtti hann einnig til að taka upp frekara efni til sýninga ytra.

Hér má sjá brot úr kvikmynd Kjartans um Heklugosið 1947

 

Á vef Kvikmyndasafnsins er hægt að skoða ýmsar kvikmyndir og myndbrot frá Suðurlandi. 

 

Fréttin birtist fyrst á vef Sunnlenska.is 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?