Heklukot auglýsir eftir leikskólakennurum

Ertu þú jákvæður með gott skopskyn og finnst frábært að læra eitthvað nýtt ? Ertu til í að koma til okkar og kenna stærðfræði, íslenskt mál, sköpun í allri sinni dýrð, vísindi, íþróttir og útivist?
Ertu til í að takast á við áskoranir í lífinu ?

Við erum að auglýsa eftir kennurum til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.
Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni, sýna frumkvæði, sjálfstæði, hafa metnað fyrir starfi sínu og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námskrá skólans.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara, ef ekki þá ráðum við leiðbeinendur af öllum kynjum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði í ræðu og riti
  • Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 3. júlí og mun vinnan hefjast 11. ágúst. n.k

Ef þú hefur áhuga sendu póst á inga@heklukot.is