Helga Guðrún ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi

Helga Guðrún Lárusdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra. Hún mun hefja störf í byrjun maí næstkomandi. Helga er búsett á Selfossi, þekkir vel til á Suðurlandi öllu og hefur sterka tengingu við svæðið og nærsamfélagið.

Ráðin úr hópi 12 umsækjenda

Starfið var auglýst þann 25. febrúar 2026 eftir að núverandi markaðs- og kynningarfulltrúi sagði starfi sínu lausu. Umsóknarfrestur var til og með 16. mars. Tólf umsækjendur sóttu um starfið en tveir þeirra drógu umsókn sína til baka í ferlinu.
 
Helga Guðrún hefur frá árinu 2024 starfað hjá ÞH Blikk á Selfossi við almenna blikksmíðavinnu og einng sinnt þar markaðs- og kynningarmálum. Þar á undan var hún ritstjóri og blaðamaður á Dagskránni og dfs.is.
Hún hefur umfangsmikla reynslu af textagerð, ritstjórn, efnissköpun og vefumsjón auk þess að hafa reynslu af viðburða- og verkefnastjórn.
 
Hún lauk diplómanámi í skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst með ágætiseinkunn en það nám leggur meðal annars áherslu á markaðs- og kynningarmál, framsetningu hugmynda, verkefnastjórnun og framleiðslu menningarefnis.
Einnig hefur hún lokið námskeiði í skapandi skrifum og grunnnámi í upplýsinga- og fjölmiðlafræði frá FSu.
 
Helstu verkefni markaðs- og kynningarfulltrúa eru:
  • Ábyrgð á og umsjón með markaðs-, upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins
  • Verkefnastjórnun og umsjón með framkvæmd viðburða, s.s. Töðugjöld, 17. júní á Hellu og árshátíð sveitarfélagsins
  • Umsjón með vef- og samfélagsmiðlum sveitarfélagsins
  • Þátttaka í markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd og öðrum nefndum eftir atvikum
  • Samskipti við ýmsa hagsmunaaðila
  • Önnur tilfallandi sérverkefni, s.s. á sviði ferðamála, stefnumótunar og skýrslugerðar

 

Við bjóðum Helgu velkomna í hópinn og óskum henni velfarnaðar í starfi.