Hella - Þorp í þjóðbraut - í jólapakkann!
Bókin Hella - þorp í þjóðbraut fæst á eftirtöldum stöðum.
 
- Skrifstofa Rangárþings ytra
- Litla Lopasjoppan Hellu
- Söluskálinn Landvegamótum
- Bókakaffið Selfossi
 
Hægt er að panta bækur á skrifstofu Rangárþings ytra í gegnum s: 4887000 eða á netfangið ry@ry.is.

Um bókina:

Hvernig er fræjum þorps sáð í sveit og hvað ræður því hvar það sprettur? Hverjir taka sér þar búsetu og hvaðan ber þá að garði? Í bókinni Hella – þorp í þjóðbraut sem nú lítur dagsins ljós er ef til vill að finna svör við þessum spurningum og ýmsum fleirum. Þar rekur Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræðingur fyrstu ár byggðarinnar á Hellu og þær aðstæður sem þorpið sprettur úr.

Í stuttu máli er rakin saga þeirra er fyrstir bjuggu í þorpinu, fyrstu húsum gerð nokkur skil sem og sögu jarðanna er Hella byggist úr. Að auki er nokkuð fjallað um sögu Rangárvallahrepps en Hella tilheyrði honum allt til ársins 2002. Auk sagnfræðilegrar yfirferðar byggir bókin um margt á frásögnum heimamanna sem ljá henni litbrigði.

Bókina prýða meira en tvöþúsund myndir sem safnað hefur verið úr ýmsum áttum, jafn frá einstaklingum og úr stærri söfnum. Um tvöhunduð myndir koma úr safni þeirra Stolzenwald feðga sem tóku mikið af myndum á Hellu á sinni tíð.

Hér gefur að líta sögu þorps sem mörgum er kært og reynist fjölþættari en margan grunar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?