Héraðsnefnd Rangæinga óskar eftir umsóknum um styrk til menningaruppbyggingar

Héraðsnefnd Rangæinga auglýsir eftir umsóknum um styrk til menningaruppbyggingar í Rangárvallasýslu.

Skilyrði er að verkefnin sem sótt er um tengist uppbyggingu á menningarlegum arfi eða verðmætum í Rangárvallasýslu.

Stakir viðburðir koma ekki til greina við úthlutun.

Umsóknir ásamt greinargóðri kynningu sendist á oddvita héraðsnefndar, Margréti Hörpu, á margretharpa@ry.is fyrir 5. apríl 2024.

Nánari upplýsingar gefur Margrét Harpa á netfanginu margretharpa@ry.is eða í síma 868-2543.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?