Hjólabrettasvæði í uppsetningu á Hellu
Eins og sumir hafa nú þegar tekið eftir er verið að setja upp hjólabrettasvæði á afmörkuðu svæði á bílastæði við sparkvöllinn sunnan við íþróttahúsið á Hellu.
 
Áður hafði verið stefnt að því að hjólabrettagarðurinn skildi settur upp á leiksvæði við Sandöldu en fallið var frá þeim hugmyndum og ákveðið að staðsetja brettagarðinn til bráðabirgða á bílastæðið við sparkvöllinn á Hellu. Vinnuhópur um framtíðarskipulag íþróttavallasvæða í Rangárþingi ytra mun koma með tillögu að framtíðarstaðsetningu hjólabrettagarðsins.
 
Stefnt er að því að brettagarðurinn verði tilbúinn fyrir Töðugjöld sem eru framundan.
 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?