21. ágúst 2026
Kristján Magnússon kom færandi hendi í vikunni og afhenti sveitarfélaginu þetta fallega skilti fyrir hönd VISS, vinnu- og hæfingarstöðvar á Hvolsvelli. Eiríkur Vilhelm sveitarstjóri tók við skiltinu sem kemur til með að prýða skrifstofu sveitarfélagsins og verður staðsett á áberandi stað svo sem flestum gefist færi á að njóta þess.
VISS, vinnu- og hæfingarstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu, er staðsett á Hvolsvelli en þjónustar alla Rangárvallasýslu. Hægt er að koma við hjá þeim á Hvolsvelli og kaupa vörur sem þau hafa framleitt en einnig er hægt að óska eftir sérsmíði á skiltum í anda þess sem sveitarfélaginu var afhent. Hægt er að fylgjast með starfsemi VISS á Facebook.
Rangárþing ytra þakkar kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.