Horft til framtíðar; opnir fundir um skóg- og skjólbeltarækt

HORFT TIL FRAMTÍÐAR!

Opnir fundir um skóg- og skjólbeltarækt.

Félag skógareigenda á Suðurlandi (FsS), í samstarfi við Skógræktina, boða til opinna funda um skóg- og skjólbeltarækt á eftirtöldum stöðum:

  1. október á Götum í Mýrdal kl 17:00. Fundarstjóri: Hrönn Guðmundsdóttir
  2. október á Hótel Klaustri kl 20:00. Fundarstjóri: Sólveig Pálsdóttir.
  3. október í Goðalandi Fljótshlíð kl 17:00. Fundarstjóri: Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
  4. október á Hótel Selfossi kl 20:00. Fundarstjóri: Agnes Geirdal.

Dagskrá fundanna er:

  1. Starf skógarbænda á Suðurlandi.
  • Hlutverk FsS - Björn Bjarndal
  • Að vera skógarbóndi - Ísólfur Gylfi Pálmason
  • Að taka þátt í leshópum um skógrækt og skjólbeltarækt. Skráning hefst í þriggja ára leshóparöð.
  • Nýtt félagskerfi skógarbænda.
  1. Horft til framtíðar í nytja- og skjólbeltarækt.

Sérfræðingar Skógræktarinnar á Suðurlandi ræða um stöðu nýtjaskógræktar og skjólbeltaræktar á Suðurlandi, m.a. með tilliti til bindingar kolefnis í skógum og önnur verkefni Skógræktarinnar.

  1. Almennar umræður.

Starfið framundan:

Hvert á hlutverk skógarbænda að vera í grisjun og umhirðu skóga, ásamt úrvinnslu skógarafurða.

Hvers konar verktakavinnu vantar í skjólbelta- og skógrækt? Hver, hvar, hvernig?

Fræðsla fyrir skjólbelta- og skógarbændur.

Fundirnir eru öllum opnir.

Horfum til framtíðar.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?