Hringur fagnar 20 ára afmæli

Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi, fagnar 20 ára afmæli sínu með afmælistónleikum sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:30 í Hátíðarsal Grunnskólans á Hellu.

Á tónleikunum kemur Hringur fram ásamt Vinum Jenna og Sigurði Matthíasi Sigurðarsyni einsöngvara. Guðjón Halldór Óskarsson leikur á píanó og stjórnandi kórsins er Kristín Sigfúsdóttir.

Í tilefni afmælisins verður einnig frumsýnt hljóð- og myndband með efni frá starfi kórsins á árunum 2019–2026 sem Pétur Einarsson hljóðmaður hefur unnið að.

Að tónleikum loknum verður boðið upp á afmæliskaffi í menningarsalnum við Dynskála.

Aðgangseyrir er 3.000 krónur.

Hringur hefur nú starfað í tvo áratugi og er öllum velkomið að koma og fagna þessum tímamótum með kórnum.