Hvernig langar þig að fagna 100 ára afmæli Hellu?

Árið 2027 verða 100 ár liðin frá upphafi byggðar á Hellu og fram undan er því sérstakt afmælisár.

Af því tilefni vill Rangárþing ytra kalla eftir hugmyndum frá íbúum um hvernig við getum saman gert afmælisárið eftirminnilegt og skemmtilegt.

Hvernig myndir þú vilja sjá 100 ára afmæli Hellu fagnað?

Hugmyndirnar geta verið stórar eða smáar, allt frá viðburðum, sýningum og menningardagskrá yfir í verkefni fyrir börn og fjölskyldur, sögu Hellu, umhverfi bæjarins eða eitthvað sem gæti staðið eftir sem varanleg minning um afmælisárið.

Við viljum heyra frá fólkinu sem myndar samfélagið á Hellu og í Rangárþingi ytra og hvetjum því öll sem hafa hugmynd í kollinum til að senda hana inn.

Hægt er að senda inn hugmyndir til 1. október.

Sendu okkur þína hugmynd hér!

Að lokinni hugmyndasöfnun verða tillögurnar teknar saman og lagðar fyrir markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd, sem mun vinna áfram að undirbúningi afmælisársins.