Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggingariðnaði tekur gildi 1. janúar 2015

 

Mannvirkjastofnun vekur athygli á að allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk

sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015

skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af stofnuninni.

Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggir á  ákvæðum 24. gr., 31. gr. og 32. gr. laga um mannvirki

en samkvæmt 7. tölulið ákvæða til bráðabirgða í lögunum er veittur frestur til 1. janúar 2015

til að uppfylla ákvæðin.

Nánari upplýsingar má m.a. nálgast á vef Mannvirkjastofnunar undir neðangreindri slóð:

http://www.mannvirkjastofnun.is/byggingar/gaedastjornunarkerfi/

 

 

Innleiðing gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði - Kynningarfundir

Mannvirkjastofnun og Samtök Iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu

gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í september og október.

 

Fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

 

Egilsstaðir                 22. september kl. 13:00                  Hótel Hérað

Akureyri                    23. september kl. 09:00                  Hótel KEA

Sauðárkrókur           23. september kl. 14:00                  Hótel Mælifell

Ísafjörður                   24. september kl. 13:00                  Hótel Ísafjörður

Borgarnes                 25. september kl. 09:30                  Hótel Borgarnes

Stykkishólmur          25. september kl. 15:00                  Hótel Stykkishólmur

Reykjanesbær         29. september kl. 15:00                  Flughótel

Hella                          30. september kl. 15:00                  Árhús, gistihús

Reykjavík                  9. október kl. 15:00                         Grand Hótel - Hvammur

 

Allir aðilar sem tengjast mannvirkjagerð eru velkomnir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?