12. janúar 2026
Viðurkenningarhafar fyrir íþróttaafrek og framúrskarandi störf ársins ásamt íþróttakonu og íþróttamanni ársins 2025.
Íþróttaafreksfólk Rangárþings ytra 2025!
Laugardaginn 10. janúar var haldin athöfn þar sem Rangárþing ytra heiðraði íþróttafólk sveitarfélagsins fyrir glæsileg afrek á árinu 2025. Samfélagið okkar býr yfir einstökum mannauði – íþróttafólki sem leggur á sig ótal æfingatíma, sýnir aga, metnað og seiglu og er um leið fyrirmynd fyrir börn og ungmenni, innan vallar sem utan.
Viðurkenningar fyrir íþróttaafrek 2025:
• Árni Björn Pálsson – hestaíþróttir
• Dagur Sigurðarson – hestaíþróttir
• Elísabet Líf Sigvaldadóttir – hestaíþróttir
• Guðbjörg Stella Pálmadóttir – borðtennis
• Guðmundur Ólafur Bæringsson – borðtennis
• Guðný Lilja Pálmadóttir – borðtennis
• Gústaf Ásgeir Hinriksson – hestaíþróttir
• Helga Fjóla Erlendsdóttir – frjálsar íþróttir
• Herdís Björg Jóhannsdóttir – hestaíþróttir
• Hinrik Bragason – hestaíþróttir
• Jóhanna Margrét Snorradóttir – hestaíþróttir
• Jón Ársæll Bergmann – hestaíþróttir
• Kristinn Ásgeir Þorbergsson – knattspyrna
• Lea Mábil Andradóttir – borðtennis
• Lilja Dögg Ágústsdóttir – hestaíþróttir
• Sara Sigurbjörnsdóttir – hestaíþróttir
• Veigar Þór Víðisson – frjálsar íþróttir
Framúrskarandi liðsárangur 2025:
• Meistaraflokkur KFR – fyrir sögulegt tímabil með því að fara upp um deild. Viðurkenning veitt fyrir hönd liðsins og meistaraflokksráðs, móttekin af Guðmundi Jónassyni.
Viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf í þágu íþrótta- og tómstundastarfs 2025:
• Jónína Lilja Pálmadóttir – fyrir uppbyggingu hestafimleika á Hellu.
• Viðar Rúnar Guðnason – fyrir öflugt starf hjá Skyttunum og uppbyggingu barna- og unglingastarfs.
Heiðursverðlaun Rangárþings ytra:
• Dagný Brynjarsdóttir – fyrir einstakan knattspyrnuferil og fyrirmyndarhlutverk.
Íþróttamaður Rangárþings ytra 2025:
• Jón Ársæll Bergmann - Hestaíþróttir.
Íþróttakona Rangárþings ytra 2025:
• Helga Fjóla Erlendsdóttir - Frjálsar íþróttir.
Að baki afreksfólki er öflugt stuðningsnet – þjálfarar, foreldrar, félagar, félög og samfélagið allt.
Rangárþing ytra er óendanlega stolt af sínu íþróttafólki og hlakkar til spennandi íþróttaárs 2026.
Innilegar hamingjuóskir til ykkar allra!




