Íþróttamaður ársins 2016

Íþrótta- og tómstundanefnd Rangárþings ytra auglýsir eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2016. Ungmenna- og íþróttafélög í sveitarfélaginu tilnefna sína íþróttamenn með  lýsingu á afrekum tilnefnds íþróttamanns.

Einnig gefst almenningi tækifæri til að senda inn og tilnefna íþróttamann ársins. Þó skal fylgt eftir 2.grein reglugerðar um val á íþróttamanni ársins sem samþykktar voru 2009.

 

2. grein

„Íþrótta- og tómstundanefnd Rangárþings ytra sér um undirbúning að vali íþróttamanns ársins.

Tilnefningar skulu koma frá íþrótta- og ungmennafélögum í Rangárþingi ytra og einnig frá öðrum félögum innan vébanda ÍSÍ í sveitarfélaginu.

Íþrótta- og tómstundanefnd mun auglýsa eftir tilnefningum frá íþrótta- og tómstundafélögum í sveitarfélaginu, en einnig skal almenningi gefin kostur á að tilnefna íþróttamann ársins.

Með tilnefningu skal fylgja greinargerð um árangur og rökstuðningur fyrir tilnefningu viðkomandi.

Skilyrði er að viðkomandi eigi lögheimili í Rangárþingi ytra og sé a.m.k. 16 ára á árinu. Gerð  er krafa til þess að íþróttamaðurinn sé góð fyrirmynd innan vallar sem utan.“

 

Tilnefningum skal skilað í síðasta lagi 16. janúar til markaðs- og kynningarfulltrúa Rangárþings ytra á netfangið: eirikur@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?