Íþróttamiðstöð - laust starf

Starfsfólk vantar frá og með 1. september.

Um er að ræða 100% framtíðarstarf í vaktavinnu og kvöld og helgarvaktir. Umsækjandi þarf að standast hæfnispróf sbr. öryggisreglugerð fyrir sundstaði og eiga gott með að umgangast börn og unglinga, hafa góða þjónustulund og vera stundvís.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Rangárþings ytra eða til forstöðumanns Íþróttamiðstöðvar. Einnig er hægt að sækja um með því að smella hér.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Svavarsson s: 8645747.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?