Jólaheimsókn leikskólabarna

Það er orðin árleg hefð að nemendur á leikskólanum Heklukoti komi við á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir jólin og skreyti jólatréð okkar með heimagerðu skrauti.

Þetta er með skemmtilegri heimsóknum sem við fáum og krakkarnir voru bæði kurteis og skemmtileg, fengu piparkökur og sungu nokkur vel valin jólalög.