09. mars 2026
Nokkrir nemendanna á sviði // Mynd frá Laugalandsskóla
Árshátíð Laugalandsskóla var haldin 5. mars síðastliðinn. Hátíðin lukkaðist vel og leikritið Kardemommubærinn var sýnt fyrir fullu húsi.
Allir nemendur skólans tóku þátt í sýningunni en bæði nemendur og starfsfólk lögðu hart að sér vikum saman til að koma sýningunni á fjalirnar.
Um 100 nemendur eru í Laugalandsskóla svo allir sem komu að sýningunni eiga hrós skilið fyrir skipulagið.
Til hamingju Laugalandsskóli!
Nánar má lesa um hátíðina á heimasíðu skólans og þar má einnig sjá fleiri myndir frá kvöldinu.