Karitas Tómasdóttir valin í U19 landslið kvenna í knattspyrnu

Karitas Tómasdóttir hefur verið valin í U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu sem fer til Búlgaríu þar sem liðið leikur í undanriðli Evrópumótsins 21.-26. september. Mótherjar Íslands í riðlinum eru auk heimastúlkna, Slóvakía og Frakkland.

Þetta er í fyrsta sinn sem Karítas er valin í landsliðshóp og óskum við henni til hamingju með þennan stórkostlega árangur!


Tengdar fréttir: http://ry.is/frettir/karitas_t%C3%B3masd%C3%B3ttir_%C3%AD_%C3%A6fingah%C3%B3p_u19_landsli%C3%B0sins_%C3%AD_knattspyrnu

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?