Grunnskólinn Hellu auglýsir stöður kennara og umsjónarkennara á miðstigi, fyrir skólaárið 2026-2027.
Hæfnikröfur:
- Kennaramenntun/leyfisbréf til kennslu
- Kennslureynsla æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027.
Aðstaða kennara og nemenda er til fyrirmyndar í nýrri skólabyggingu á Hellu.
Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.
Aðstoðað verður við húsnæðisleit í nágrenninu sé þess óskað.
Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:
- Sigurjón Bjarnason, skólastjóri, á netfang sigurjon@grhella.is eða í síma 488 7021 / 8964841
- Kristinn Ingi Austmar Guðnas., á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 8481467
Umsóknarfrestur er til 12. Maí 2026
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.