Kennarar óskast á Heklukot

Ert þú jákvæður með gott skopskyn og finnst frábært að læra eitthvað nýtt ? Komdu þá til okkar því við viljum fá þig.....

Við erum að auglýsa eftir kennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra.

Unnið er eftir markmiðum Skóla á grænni grein sem fela í sér sambærilegar áherslur og í Aðalnámskrá leikskóla (2011). Einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.

Óskað er eftir kennurum í 100 % stöður.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði í ræðu og riti.
  • Hreint sakavottorð

Að vinna í leikskóla er krefjandi og því þarf viðkomandi að vera heilsuhraustur. Hafa góða samskiptahæfni, sýna frumkvæði, sjálfstæði, hafa metnað fyrir starfi sínu og vera tilbúin til að vinna að málörvun, uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá og í nánu sambandi við stjórnendur leikskólans. Óskað er eftir körlum jafnt sem konum.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á inga@heklukot.is fyrir

20 júlí nk. Einnig má sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: www.heklukot.is
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 10. Ágúst. Nk.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?