Kennarar óskast við Grunnskólann á Hellu

Grunnskólinn Hellu auglýsir stöður kennara/umsjónarkennara á yngsta, mið- og elsta stigi fyrir skólaárið 2026-2027

Hæfnikröfur

  • Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Kennslureynsla æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Í Grunnskólanum Hellu verða um 190 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2026-2027. Aðstaða kennara og nemenda er til fyrirmyndar í nýrri skólabyggingu á Hellu.

Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.

Boðið er upp á aðstoð við húsnæðisleit í nágrenninu sé þess óskað.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans með því að smella hér.

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:

  • Sigurjón Bjarnason, skólastjóri, á netfangið sigurjon@grhella.is eða í síma 488 7021 / 8964841
  • Kristinn Ingi Austmar Guðnas., á netfangið kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 8481467

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2026

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Störfin henta jafnt konum sem körlum.