26. mars 2026
Laugalandsskóli er staðsettur á Laugalandi í Holtum í Rangárþingi ytra. Nemendur eru um 100.
Laugalandsskóli í Holtum auglýsir eftirfarandi störf:
- Umsjónarkennari á mið- og elsta stigi.
- List- og verkgreinakennari.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Annast kennslu í hinum ýmsu bóklegu greinum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk.
- Vinna samkvæmt uppeldisaðferð jákvæðs aga.
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
- Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf til kennslu æskilegt.
- Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina.
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
- Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Mjög góð íslenskukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknum skal fylgja leyfisbréf, ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2026.
Umsóknir og umbeðin fylgigögn skal senda á jonas@laugaland.is
Nánari upplýsingar veita:
- Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri á jonas@laugaland.is
- Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri á ragna@laugaland.is.