Kennari óskast í 50% starf

Staða kennara við Grunnskólann Hellu er laus til umsóknar. Um er að ræða 50% stöðu næsta skólaár er felur í sér kennslu skjólstæðinga sem dvelja á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti Rangárþingi ytra.

Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með skjólstæðingum Lækjarbakka í Gunnarsholti.

Helstu verkefni:

  • Kennsla helstu námsgreina grunnskólanemenda samkvæmt einstaklingsnámskrá skjólstæðinga
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Kennaramenntun æskileg
  • Þekking og reynsla af meðferðarúrræðum BOFS
  • Þriggja ára háskólamenntun skilyrði
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg
  • Þekking á ART og MST
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af starfi með unglingum nauðsynleg
  • Ríkuleg hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.

Hreint sakavottorð og bílpróf eru skilyrði.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á netfangið sigurjon@grhella.is

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Starfstími næsta skólaárs sem byrjar 1. ágúst 2026

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurjón Bjarnason, skólastjóri Grunnskólans Hellu á netfanginu sigurjon@grhella.is og Dögg Þrastardóttir forstöðumaður meðferðaheimilis Lækjarbakka dogg@bofs.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2026