10. júní 2025
Fréttir

Ætlarðu að taka aðeins til og fylla kerru af sorpi og koma með á móttökustöðina á Strönd? Ekkert mál, en fyrst þarf að huga að nokkrum mikilvægum atriðum:
- Flokka þarf sorp á kerrum áður en mætt er að Strönd.
- Flokkað sorp þarf að vera sýnilegt starfsmönnum – troðnar kerrur af allskonar í einum graut gengur ekki.
- Notast skal við glæra ruslapoka undir það sem sett er í poka.
- Kynnið ykkur gjaldskrána vel fyrir þá úrgangsflokka sem tekið er við á Strönd.
- Gefið ykkur tíma og gangið vel um móttökustöðina.
Gerum þetta saman – við græðum öll á því að flokka rétt og vel