Viktor Steingrímsson frá KFR tekur við viðurkenningunni frá Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ // Myn…
Viktor Steingrímsson frá KFR tekur við viðurkenningunni frá Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ // Mynd frá KSÍ

Knattspyrnufélag Rangæinga hlaut nýverið jafnréttisverðlaun KSÍ.

Meistaraflokkur kvenna var stofnaður árið 2018 og með því hófst markviss vinna við að koma í veg fyrir brottfall stelpna úr fótbolta eftir grunnskóla. Félagið býður upp á gjaldfrjálsar æfingar fyrir 2. flokk og eldri og hefur þannig tekist að halda uppi æfingum fyrir þennan aldur. Stelpurnar hafa m.a. tekið þátt í Íslandsmótinu í Futsal og eru skráðar til leiks í 2. deild kvenna í sumar.

Rangárþing ytra óskar KFR innilega til hamingju með hvatningu um að halda áfram og þakklæti fyrir þeirra frábæra fótboltastarf.