Kjörfundur í Rangárþingi ytra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB

Kjörfundur í Rangárþingi ytra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB laugardaginn 29. ágúst 2026, verður sem hér segir:

Í Grunnskólanum á Hellu, Útskálum 6-8.

Kjörstaður verður opinn frá klukkan:

9:00 – 20:00

Athugið breyttan opnunartíma.

 

Kjósendur eru beðnir að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað.

Rangárþing ytra tekur þátt í prófun á rafrænni kjörskrá í samvinnu við Þjóðskrá og vegna þess verður einnig notast við tölvur við skráningu kjósenda.

Aðsetur kjörstjórnar á kjördegi er á kjörstað.

 

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins í Miðjunni 2.h., Suðurlandsvegi 1-3

Hellu, á skrifstofutíma fram að kjördegi

 

Skrifstofa sveitarfélagsins er opin

Mánudaga – fimmtudaga 9-15

Föstudaga 9-12

 

Bent er á upplýsingavef https://www.thjodaratkvaedi.is/ en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni: https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/thjodaratkvaedagreidsla-2026/

 

Yfirkjörstjórn

Rangárþings ytra