Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 og utankjörfundaratkvæði

Kjörskrá Rangárþings ytra verður aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins í Miðjunni, Suðurlandsvegi 1–3, frá 25. apríl fram að kjördegi á opnunartíma.

Opnunartími skrifstofu:

  • Mánudaga-fimmtudaga: 9–15
  • Föstudaga: 9-12

Utankjörfundaratkvæði

Þau sem ætla að kjósa utan kjörfundar þurfa að greiða atkvæði hjá næsta sýslumanni. Þau sem gera það eiga kost á að taka atkvæðið með sér og skila því inn á skrifstofu Rangárþings ytra á opnunartíma fram að kjördegi. Einnig má skilja það eftir hjá sýslumanni sem sér um að koma því til talningar á réttum stað. 

Hægt er að kjósa hjá sýslumönnum um land allt en sýslumannsembættið á Hvolsvelli er næst okkur.

Smellið hér til að nálgast frekari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar.

Kjörskrá og hagnýtar upplýsingar

Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á eftirfarandi vefslóð:

https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/

Hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna má nálgast á upplýsingarvef island.is með því að smella hér. Þar eru m.a. upplýsingar um utankjörfundaratkvæði, kjörstaði, frambjóðendur og fleira.

 

Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram 16. maí næskomandi og kosið verður í Grunnskólanum á Hellu eins og venjan er. Kjörstaður verður opinn frá kl. 9–22 þann dag.