Þriðjudaginn 22. september verður haldinn kynningarfundur um fyrirhugaða stofnun Lionsklúbbs í Rangárþingi. Fundurinn fer fram í Safnaðarheimili Oddasóknar að Dynskálum 8 á Hellu og hefst kl. 20:00.
Lions er alþjóðleg hreyfing sem starfar í þágu samfélagsins með áherslu á hjálpsemi, mannúð og samfélagsþjónustu.
Á fundinum verður Lionsstarfið kynnt og meðal annars fjallað um hvað Lions er, hvernig hreyfingin lætur gott af sér leiða í samfélaginu og hvernig félagsstarfið fer fram. Einnig verður farið yfir hvað þátttaka í Lions getur fært félagsmönnum og hvernig áhugasamir geta tekið þátt í starfinu og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta, konur jafnt sem karlar, kynna sér starf Lions og heyra nánar um fyrirhugaða stofnun Lionsklúbbs í Rangárþingi.