Landstólpinn – árleg viðurkenning Byggðastofnunar - ábendingar óskast!

Landstólpinn. Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar“ er árleg viðurkenning sem Byggðastofnun veitir á ársfundi sínum og var það gert í fyrsta sinn á ársfundi 2011. Þá hlaut Jón Jónsson þjóðfræðingur á Ströndum Landstólpann. Það er von okkar að viðurkenning sem þessi gefi jákvæða mynd af landsbyggðinni og af starfi stofnunarinnar. Viðurkenningin er hvatning og einskonar bjartsýnisverðlaun, því hugmynd að baki er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.

Nokkur svipuð verkefni eru í gangi og sum hver hafa fastan sess. Sum þeirra einskorðast við ákveðin málaflokk eða þátttakendur. Samfélagsviðurkenningin Landstólpinn er hins vegar þvert á málaflokka og opin öllum. Landstólpann má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélagi. Það gæti t.d. verið eitthvert tiltekið verkefni eða starfsemi, umfjöllun eða annað og gæti bæði hafa vakið athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Hér með er lýst eftir ábendingum um handhafa Landstólpans 2013. Dómnefnd velur síðan úr þeim tillögum sem berast.

Hafa má í huga við ábendinguna hvort viðkomandi hafi:

-          gefið jákvæða mynd af landsbyggðinni eða viðkomandi svæði
-          aukið virkni íbúa eða fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
-          orðið til þess að fleiri verkefni/ný starfsemi verði til
-          dregið að gesti með verkefni eða umfjöllun sinni

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar.

Viðurkenningunni fylgir skjal og listmunur hannaður af lista- eða handverksfólki á því svæði þar sem fundurinn er haldinn.

Það er von okkar að sem flestir taki þátt í valinu með því að senda okkur ábendingar fyrir miðvikudaginn 20. mars n.k. á netfangið sigga@byggdastofnun.is

 

Nánari upplýsingar gefur Sigríður K. Þorgrímsdóttir, s. 455 5400

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?