Eftirfarandi er tilkynning frá Landsvirkjun:
Landsvirkjun hyggst stækka Sigöldustöð með því að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Undirbúningsframkvæmdir eru hafnar og eru verklok áformuð árið 2029. Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð fór í gegnum umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar þann 18. desember 2023. Aflstöðin verður í eðlilegum rekstri á framkvæmdatíma nema þegar hana þarf að stöðva vegna framkvæmda í inntaki og/eða í frárennslisskurði. Gert er ráð fyrir að það verði gert tvisvar á framkvæmdatímanum eða sumarið 2026 og sumarið 2028.
Til þess að hægt sé að vinna við inntak og frárennslisskurð þarf að lækka í Krókslóni. Fyrirhugað er að lækkunin hefjist í kringum 1. júlí 2026 og tekur hún um þrjár vikur. Um er að ræða hæga lækkun vatnsborðs eða um einn og hálfan meter á sólarhring og er áætlað að lágmarksstöðu lónsins verði haldið frá 22. júlí til 15. ágúst. Þessi lækkun er sambærileg við þær breytingar sem áður hafa verið gerðar vegna viðhalds og viðgerða á stöðinni.
Á þessum tíma, frá 1. júlí og til 15. ágúst 2026, verður rennsli Tungnaár beint niður Sigöldugljúfur, líkt og áður en aflstöðin var byggð. Ásýnd árinnar mun því breytast á þessum tíma í Sigöldugljúfri, Tungnaáin verður jökullituð með töluvert meira rennsli en venjulega. Sama á við um Sigöldufoss skammt frá Sigöldustöð en aðgengi að honum verður takmarkað og núverandi leið að fossinum og svæðinu þar um kring verður lokað vegna öryggissjónarmiða. Gert er ráð fyrir þessum takmörkunum að Sigöldufossi á framkvæmdatíma stækkunarinnar eða til ársins 2029.
Vorið 2026 er áætlað að útbúa útsýnisstað með upplýsingaskiltum norðan Tungnaár þar sem gott útsýni er yfir framkvæmdasvæðið og hluta Sigöldufoss. Útsýnisstaðurinn verður merktur sérstaklega með útskoti frá Fjallabaksleið nyrðri. Rétt er að taka fram að á framkvæmdatíma stækkunarinnar þarf hvorki að takmarka umferð um Fjallabaksleið nyrðri né aðgengi að Sigöldugljúfri. Þó má búast við tímabundnu ónæði af völdum umferðar verktaka í nágrenni við Sigöldustöð á verktímanum.
Landsvirkjun mun veita frekari upplýsingar eftir því sem framvinda verkefnisins skýrist nánar og er ávallt tilbúin til samtals sé þess óskað.