Í öllu fjörinu á kvöldvökunni í gær misfórst að tilkynna sigurvegara í skreytingakeppni Töðugjalda og biðjumst við velvirðingar á því.
Best skreytta húsið í ár var Langalda 20, heimili Eiríks, Glódísar og barna þeirra. Þau hljóta að verðlaunum veglegt Landmann-grill frá Húsasmiðjunni, sem þeim verður afhent síðar í vikunni. Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum um leið öllum sem lögðu metnað í að skreyta hús sín og garða og setja svip sinn á hátíðina.
Nú þegar Töðugjöldum 2026 er lokið viljum við jafnframt færa íbúum, gestum, samstarfsaðilum, sjálfboðaliðum, listafólki, fyrirtækjum og öllum þeim fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg hjartans þakkir fyrir sitt framlag.
Hátíð af þessari stærðargráðu verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til vegna fólksins sem mætir, tekur þátt, hjálpar til, skemmtir, styður við og skapar þá stemningu sem gerir Töðugjöld að þeirri hátíð sem þau eru.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir helgina og fyrir hversu vel tókst til.
Á næstu dögum, þegar aðeins hefur hægst um, munum við birta fleiri myndir og myndbönd frá hátíðinni og rifja upp nokkur af fjölmörgum góðum augnablikum helgarinnar en hér er hægt að skoða þær fjölmörgu myndir sem Óli ljósmyndari er búinn að hlaða upp frá helginni og hér er flott drónaskot sem við fengum sent frá Þráni Gíslasyni.
Takk fyrir Töðugjöld 2026 og takk fyrir að gera hátíðina að því sem hún varð!

Íbúar að Langöldu 20 lögðu mikinn metnað í skreytingarnar í ár og voru vel að sigrinum komin.