Laugalandsskóli í Holtum auglýsir starf grunnskólakennara

Laugalandsskóli í Holtum auglýsir starf grunnskólakennara:

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu í hinum ýmsu bóklegu greinum
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
  • Vinna samkvæmt uppeldisaðferð Jákvæðs aga
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
  • Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

 

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknum skal fylgja leyfisbréf, ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila.

Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknarfrestur er til 18. maí.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í netfangið jonas@laugaland.is

og Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í netfangið ragna@laugaland.is.