01. júní 2026

Laugalandsskóli í Holtum auglýsir:
Þroskaþjálfa/sérkennara
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk
- Vera partur af stoðþjónustu skólans og halda utan um mál einstaka nemenda
- Annast kennslu og þjálfun nemenda
- Halda utan um gerð einstaklingsáætlana
- Vinna samkvæmt uppeldisaðferð Jákvæðs aga
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
Menntunar- og hæfnikröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi
- Leyfisbréf til kennslu
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
- Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Hreint sakavottorð
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknum skal fylgja leyfisbréf, ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til 12. júní.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í netfangið jonas@laugaland.is
Og Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í netfangið ragna@laugaland.is.