Laugalandsskóli auglýsir eftirfarandi störf:
Kennara í 100% stöðu
Viðkomandi þarf að vera skapandi í starfi og hafa áhuga á að þróa í samvinnu við starfsfólk framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir. Í Laugalandsskóla stunda um 100 nemendur nám. Einkunnarorð skólans eru samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi og lögð er áhersla á sjálfstæð og gagnrýnin vinnubrögð nemenda með sérstaka áherslu á félagsþroska í góðri samvinnu við foreldra.
Kennslugreinar: Tónmennt, stærðfræði og íslenska.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf kennara eða sambærileg menntun
- Færni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
Einnig vantar stuðningsfulltrúa í 100% starf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í síma 8699010.Umsóknarfrestur er til og með 15. júní og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; jonas@laugaland.is