Laus störf á leikskólanum Heklukoti

Leitað er eftir starfsfólki til vinnu við leikskólann Heklukot.
Heklukot er þriggja deilda leikskóli með um 65 nemendur frá eins til fimm ára og er markvisst unnið eftir stefnu Grænfánans og Heilsustefnunnar.  Leikskólinn er staðsettur á Hellu í Rangárþingi ytra sem er um 100 km frá Reykjavík. 
Í Heklukoti  vinnur metnaðarfullt starfsfólk í fallegu héraði sem býður upp á marga möguleika.

Leitað er að jákvæðu, áhugasömu og heilsuhraustu starfsfólki, körlum eða konum, með góða samskiptahæfni, sem er tilbúið í áframhaldandi uppbyggingu á leikskólastarfi í fallegu umhverfi.

Sveitarfélagið Rangárþing Ytra styrkir starfsmenn til háskólanáms í leikskólakennarafræðum hafi þeir áhuga á því.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi.

Nánari upplýsingar veitir Auður Erla Logadóttir leikskólastjóri í síma 4887045, netfang: heklukot(hjá)ry.is

Upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu skólans, þar er einnig hægt að senda inn rafræna starfsumsókn: www.leikskolinn.is/heklukot

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?