Laus störf við Leikskólann á Laugalandi

AÐSTOÐARLEIKSKÓLASTJÓRI - DEILDARSTJÓRI - LEIKSKÓLAKENNARAR

Leikskólinn Laugalandi óskar eftir leikskólakennurum í eftirfarandi stöður.

Aðstoðarleikskólastjóra í 50% stöðu frá 5. ágúst. Aðstoðarleikskólastjóri starfar við hlið leikskólastjóra og er staðgengill í fjarveru hans.

Menntunarkröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar

 

Deildarstjóra í 100% stöðu frá 5. ágúst. Deildarstjóri starfar samkvæmt starfslýsingu og samráði við leikskólastjóra.

Menntunarkröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er æskileg

 

Leikskólakennarar í 100% stöður frá 5. ágúst

 

Menntunarkröfur

  • Leyfisbréf til kennslu eða önnur menntun sem nýtist í starfi

 

Leitað er eftir áhugasömum, glaðværum og metnaðarfullum starfsmönnum af öllum kynjum sem hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og eru tilbúnir til að vinna eftir sérstökum áherslum skólans.

Leikskólinn starfar m.a. eftir uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“ og eru helstu áherslur í starfi m.a. traust og góð umönnun og vellíðan barnanna á allan hátt, leikur, útikennsla, slökun og fjölbreyttar vinnustundir. Mikil og góð samvinna er við grunnskólann sem er undir sama þaki og leikskólinn.

Einkunnarorð leikskólans eru: Viska – Vinátta - Virðing

Leikskólinn Laugalandi er þriggja deilda leikskóli og er staðsettur að Laugalandi í Holtum. Umhverfi skólans einkennist af fjölbreyttri íslenskri náttúru sem býður uppá endalausa möguleika fyrir leik og nám.

Í Leikskólanum Laugalandi er boðið upp á fulla vinnustyttingu sem tekin er út að hluta í kring um jól og í dymbilviku. Einnig lokar leikskólinn kl. 14 á föstudögum.

Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendast á Leikskólann Laugalandi, 851 Hella fyrir 20. maí eða á leikskolinn@laugaland.is

Upplýsingar veitir Sigrún Björk Benediktsdóttir, leikskólastjóri

Veffang: https://leikskolinnlaugaland.ry.is

Netfang: leikskolinn@laugaland.is

Sími 487 6633