Leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Rangæinga

Fyrirhugað er að halda leiklistarnámskeið fyrir krakkana í 5.-10. bekk, bæði frá Grunnskólanum á Hellu og Laugalandsskóla.

Námskeiðið hefst þann 28. janúar n.k og verður frá kl. 17-19 í Menningarsalnum á Hellu.

Þá fer einnig fram skráning og kynning á námskeiðinu.

Reiknað er með 10 skiptum og er gjald 4.000 kr. pr. barn.

 

Vonumst til að sjá sem flesta.

Bara gaman ;o)

 

Stjórn Leikfélags Rangæinga

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?