Leikskólinn Heklukot auglýsir lausar stöður

Lausar eru stöður deildarstjóra og sérkennslustjóra við leikskólann Heklukot á Hellu sem er í Rangárþingi ytra. Heklukot er þriggja deilda leikskóli, með um 60 dvalarpláss fyrir börn á aldrinum eins til fimm ára. Heklukot fékk Grænfánann afhentan sl. vor og er unnið að innleiðingu á heilsustefnunni í leikskólanum.

Auglýst er eftir jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum. Hæfni í mannlegum samskiptum er mikilvæg.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2013

Umsóknum skal skilað á netfangið heklukot@ry.is , ásamt upplýsingum um menntun og reynslu.

www.leikskolinn.is/heklukot

Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 488-7045

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?