Leikskólinn Heklukot auglýsir störf

Býrðu yfir jákvæðni og góðu skopskyni og finnst þér frábært að læra eitthvað nýtt ? Ertu til í að koma til okkar og kenna stærðfræði, íslenskt mál, sköpun í allri sinni dýrð, vísindi, íþróttir og útivist?

Ertu til í að takast á við áskoranir í lífinu ?

 

Við erum að auglýsa eftir kennurum til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra.

Við vinnum eftir Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur og erum grænfánaskóli. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að starfa með börnum, sýna ábyrgð í starfi, stundvísi og vera sveigjanleg/ur.

Hæfniskröfur:

Leyfisbréf kennara, ef ekki þá ráðum við leiðbeinendur af öllum kynjum

Góð íslenskukunnátta skilyrði í ræðu og riti

Hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 31. maí og mun vinnan hefjast 8. ágúst. nk.

Ef þú hefur áhuga sendu póst á inga@heklukot.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?