Leikskólinn Heklukot - Leikskólakennari

Ertu þú jákvæður með gott skopskyn og finnst frábært að læra eitthvað nýtt ? Komdu þá til okkar því við viljum fá þig.....

Við erum að auglýsa eftir leikskólakennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra.
Heklukot er fimm deilda leikskóli með í kringum 86 nemendur.

Unnið er eftir markmiðum Skóla á grænni grein sem fela í sér sambærilegar áherslur og í Aðalnámskrá leikskóla (2011). Einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði í ræðum og riti.
  • Hreint sakavottorð

Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni, vera heilsuhraustur, sýna frumkvæði, sjálfstæði, hafa metnað fyrir starfi sínu og vera tilbúin til að vinna að málörvun, uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá og í nánu sambandi við stjórnendur leikskólans. Óskað er eftir körlum jafnt sem konum.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á inga@heklukot.is fyrir 11. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 4887045 einnig má sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: www.heklukot.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?