Deildarstjóri og leikskólakennari óskast að Laugalandi

Leikskólinn Laugaland auglýsir eftir:

Deildarstjóra – 100% staða

Leikskólakennara – 100% staða

Starfslýsing:

  • Deildarstjóri leiðir faglegt starf deildar í samræmi við áherslur aðalnámskrár, skólastefnu sveitarfélagsins og skólanámskrá leikskólans. Viðkomandi hefur yfirumsjón með foreldrasamstarfi og tekur þátt í mótun leikskólastarfs ásamt öðrum stjórnendum.
  • Leikskólakennari tekur þátt í starfi deildar, vinnur að uppeldi og menntun barna, fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim í samræmi við þarfir hvers og eins.

Leikskólinn Laugaland er þriggja deilda leikskóli með 45 nemendur á aldrinum 1-6 ára. Á leikskólanum er unnið í samræmi við stefnu um jákvæðan aga þar sem áhersla er lögð á góðvild og festu í samskiptum við börnin. Við leikskólann eru fjölbreytt tækifæri til kennslu úti í náttúrunni og framundan er uppbygging útikennslusvæðis. Unnið er að innleiðingu Heilsueflandi leikskóla ásamt því að allt starfsfólk vinnur að innleiðingu námssöguskráninga og uppeldisfræðilegra skráninga.

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla af starfi í leikskóla er mikilvæg og reynsla af stjórnun kostur
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir starfinu

Fríðindi í starf:

  • Full vinnustytting, tekin út á föstudögum, í dymbilviku og milli hátíða um jól
  • Frítt fæði
  • Fatastyrkur

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Ráðið er í starfið frá ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 25. apríl. Umsóknum skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Umsækjendur þurfa einnig að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Ómarsdóttir, leikskólastjóri, á leikskólinn@laugaland.is eða í síma 487-6633/866-2738.