Leikskólinn Laugaland verður LAB skóli jákvæðs aga

Bandarísku samtökin um jákvæðan aga, Positive Discipline Association (PDA), hafa samþykkt umsókn Leikskólans Laugalands um að verða svokallaður LAB-skóli skólaárið 2026–2027. Viðurkenningin er mikilvægur áfangi fyrir leikskólann og staðfesting á því markvissa starfi sem þar hefur farið fram við innleiðingu jákvæðs aga.

Á hverju ári auglýsa samtökin eftir skólum víðs vegar að úr heiminum til þátttöku í LAB-verkefninu og eru að jafnaði aðeins 20–40 skólar samþykktir ár hvert. Leikskólinn Laugaland verður því hluti af alþjóðlegum hópi skóla sem vinna markvisst eftir aðferðum jákvæðs aga.

Að vera LAB-skóli felur í sér að vera fyrirmyndarskóli í innleiðingu og notkun jákvæðs aga. Undanfarin ár hefur starfsfólk Leikskólans Laugalands unnið markvisst að innleiðingu aðferðanna með það að markmiði að jákvæður agi verði leiðarljós í öllu starfi leikskólans. Á komandi misserum verður jafnframt lögð aukin áhersla á að kynna hugmyndafræðina og aðferðir hennar fyrir foreldrum.

Þátttakan veitir starfsfólki aukinn aðgang að fræðsluefni og tækifæri til þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um jákvæðan aga. Stjórnendur leikskólans munu sitja mánaðarlega fundi með fulltrúum skóla frá tólf þjóðlöndum víðs vegar um heiminn. Þar gefst tækifæri til að kynnast því hvernig jákvæður agi er nýttur við ólíkar aðstæður, miðla reynslu frá Leikskólanum Laugalandi og læra af reynslu annarra.

Við leikskólann hefur undanfarin ár starfað sérstakt teymi að innleiðingu jákvæðs aga og verður þeirri vinnu haldið áfram af krafti. Markmiðið er að aðferðir jákvæðs aga fléttist enn frekar inn í allt starf leikskólans og styðji við jákvætt, uppbyggilegt og virðingarríkt skólasamfélag.