Lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns f.v. Hekla Katharína Kristinsdóttir, Maiju Varis, Hermann Arason, Ha…
Lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns f.v. Hekla Katharína Kristinsdóttir, Maiju Varis, Hermann Arason, Hans Þór Hilmarsson, Svanhildur Guðbrandsdóttir og Auður Stefánsdóttir.

Lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sigrar Suðurlandsdeild Cintamani 2023

 

Í gærkvöldi fór fram lokakvöld Suðurlandsdeildar Cintamani í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu. Fram fóru tvær greinar en keppt var í skeiði og tölti. Staðan fyrir lokakvöldið var hnífjöfn á meðal efstu tveggja liða en Nonnenmacher leiddi það var svo mjótt á munum hjá liðunum í sæti þrjú til sex.

Það fór svo að lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns stóð uppi sem sigurvegari deildarinnar annað árið í röð. Í öðru sæti var lið Nonnenmacher og Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær í því þriðja. Við óskum liðunum innilega til hamingju með frábæran árangur í vetur!

Hér má sjá heildarniðurstöðu Suðurlandsdeildar Cintamani í hestaíþróttum 2023!

Sæti

Lið

Stig

1.

Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún

376

2.

Nonnenmacher

342

3.

Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær

333

4.

Húsasmiðjan

312

5.

Black Crust Pizzeria

311

6.

Töltrider

305

7.

Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð

276

8.

Krappi

262,5

9.

Múli hrossarækt / Hestasál ehf.

189,5

10.

Dýralæknir Sandhólaferju

176

11.

Syðri-Úlfsstaðir / Traðarás

174

12.

Nagli

166,5

13.

Fiskars

71,5

 

Það er því miður svo að neðstu tvö liðin detta úr deildinni en þau hafa samt sem áður staðið sig frábærlega í vetur og þökkum við þeim kærlega fyrir þátttökuna í deildinni. Önnur lið hafa áunnið sér áframhaldandi keppnisrétt.

Við þökkum öllum sem komið hafa að deildinni í vetur, þetta var magnað tímabil!

Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:

Í skeiðinu voru margir frábærir sprettir en það fór svo að lið Húsasmiðjunnar og lið Black Crust Pizzeria voru jöfn í liðkeppninni. Bestu spretti kvöldsins áttu í flokki atvinnumanna Helga Una Björnsdóttir og Jarl frá Kílhrauni sem flugu í gegnum Rangárhöllina á tímanum 5.53 sek en þau kepptu fyrir lið Nonnemacher og í flokki áhugamanna Sanne Van Hezel á Völundi frá Skálakoti sem flugu í gegnum Rangárhöllina á tímanum 5.88 sek en þau kepptu fyrir lið Húsasmiðjunnar.

Efstu sex í skeiði má sjá hér en nánari niðurstöður má sjá í LH Kappa appinu.

Atvinnumenn

Sæti

Knapi

Hross

Tími

Lið

1

Helga Una Björnsdóttir

Jarl frá Kílhrauni

5,53

Nonnenmacher

2

Hans Þór Hilmarsson

Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði

5,58

Árbæjarhjáleiga /Hjarðartún

3

Sigurður Sigurðarson

Drómi frá Þjóðólfshaga 1

5,70

Krappi

4

Hjörvar Ágústsson

Orka frá Kjarri

5,77

Töltrider

5

Bjarni Sveinsson

Sturla frá Bræðratungu

5,92

Múli hrossarækt / Hestasál ehf

6

Hlynur Guðmundsson

Klaustri frá Hraunbæ

5,96

Black Crust Pizzeria

 

Áhugamenn

Sæti

Knapi

Hross

Tími

Lið

1

Sanne Van Hezel

Völundur frá Skálakoti

5,88

Húsasmiðjan

2

Vilborg Smáradóttir

Klókur frá Dallandi

5,99

Black Crust Pizzeria

3

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir

Snædís frá Kolsholti 3

6,01

Nagli

4

Helgi Gíslason

Hörpurós frá Helgatúni

6,07

Múli hrossarækt / Hestasál ehf

5

Brynjar Nói Sighvatsson

Tígull frá Bjarnastöðum

6,11

Töltrider

6

Sophie Dölschner

Sæla frá Hemlu II

6,19

Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð

 

Keppnin í tölti var æsispennandi og hestakosturinn alveg hreint magnaður í báðum flokkum. Ljóst var að allt þyrti að ganga upp hjá liðum Nonnenmacher og Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns því baráttan um fyrsta sæti deildarinnar var ennþá hnífjöfn eftir skeiði.

Lið Töltrider sigraði liðakeppni í tölti sem var svo sannarlega viðeigandi. Lið Töltrider átti tvo knapa í úrslitum og tvo rétt fyrir utan. Elvar Þormarsson og Heilun frá Holtabrún lentu í 3. – 4. sæti og Hjörvar Ágústsson og Öld frá Kirkjubæ enduðu í 9. Sæti í flokku atvinnumanna. Brynjar Nói Sighvatsson og Urður frá Strandarhjáleigu lentu í 3. Sæti og Þórunn Kristjánsdóttir á Dimmu frá Eystri-Hól voru næstu fyrir utan úrslit í flokku áhugamanna. Glæsilegur árangur hjá liði Töltride.

Ljóst var eftir töltkeppnina að lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns hafði sigrað deildina í ár en knapar þeirra sigruðu bæði flokk áhugamanna og atvinnumanna. Það voru þau Hekla Katharína Kristinsdóttir á Lilju frá Kvistum sem hlutu 7.43 sem sigruðu flokk atvinnumanna og Hermann Arason á Náttrúnu Ýr frá Herríðarhóli sem hlutu 7.40 sem sigruðu flokk áhugamanna.

Úrslit atvinnumanna:

Sæti

Knapi

Hross

Einkunn

Lið

1

Hekla Katharína Kristinsdóttir

Lilja frá Kvistum

7,67

Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún

2

Kristín Lárusdóttir

Strípa frá Laugardælum

7,44

Black Crust Pizzeria

3-4

Ólafur Ásgeirsson

Fengsæll frá Jórvík

7,33

Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær

3-4

Elvar Þormarsson

Heilun frá Holtabrún

7,33

Töltrider

5

Vignir Siggeirsson

Kveikja frá Hemlu II

7,28

Hemla / Hrímnir / Strandarhöfuð

6

Jóhann Kristinn Ragnarsson

Kvarði frá Pulu

7,17

Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær

 

Úrslit áhugamanna

Sæti

Knapi

Hross

Einkunn

Lið

1

Hermann Arason

Náttrún Ýr frá Herríðarhóli

7,39

Árbæjarhjáleiga / Hjarðartún

2

Katrín Sigurðardóttir

Ólína frá Skeiðvöllum

7,17

Húsasmiðjan

3

Brynjar Nói Sighvatsson

Urður frá Strandarhjáleigu

6,72

Töltrider

4

Sarah Maagaard Nielsen

Djörfung frá Miðkoti

6,67

Húsasmiðjan

5-6

Vilborg Smáradóttir

Sigur frá Stóra-Vatnsskarði

6,61

Black Crust Pizzeria

5-6

Birna Olivia Ödqvist

Tindur frá Árdal

6,61

Nonnenmacher

7

Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg

Von frá Sumarliðabæ 2

6,44

Vöðlar / Snilldarverk / Sumarliðabær

 

Við þökkum öllum sem komið hafa að deildinni í vetur, þetta var magnað tímabil!

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?