Líf og fjör í Laugalandsskóla

Það hefur verið mikið um að vera í Laugalandsskóla síðustu vikur og fjölbreytt verkefni sett svip sinn á skólastarfið. Nemendur hafa fengið skemmtilegar og fræðandi heimsóknir frá ýmsum aðilum, meðal annars frá sveitarstjóra, Bændasamtökunum, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, SS og Sunnlenska. Þá heimsótti fjölmiðlamaðurinn Samúel Örn nemendur í fjölmiðlafræði og ræddi störf sín og reynslu.

Nemendur hafa einnig verið ötulir í verklegum verkefnum, meðal annars í smíðatímum þar sem útbúnar voru glæsilegar tröppur. Samfélags- og umhverfismál hafa sömuleiðis verið í brennidepli, en sorpmál voru rædd sérstaklega í 10. bekk og regnbogafáninn blakti við hún sem tákn um inngildingu og fjölbreytileika.

Fréttirnar úr Laugalandsskóla endurspegla fjölbreytt og lifandi skólastarf þar sem áhersla er lögð á fræðslu, samfélagstengsl, sköpun og virka þátttöku nemenda og hvetjum við áhugasama til að fylgjast með áhugaverðum fréttum úr skólanum  hér.