Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að sporna við kyrrsetu og hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig meira í sínu daglega lífi. Stuðst er við ráðleggingar embættis landlæknis um hreyfingu sem segir að börn og unglingar þurfi að hreyfa sig minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir þurfi að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 21,4 mínútur daglega. Í Lífshlaupinu er miðað við 30 mín á dag fyrir 16 ára og eldri.
Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er.
60 ára og eldri geta skráð sig í hreystihópa 60+ sem bættust við árið 2024.
Margir hópar sem stunda reglulega hreyfingu á vegum íþróttafélaga og sveitarfélaga hafa tekið þátt og hlotið viðurkenningu og verðlaun fyrir sína frammistöðu.
Nánari upplýsingar um hlaupið, hópa, skráningar og fleira má nálgast hér