19. mars 2026
Ljósmyndakeppnin „Rangárþing með augum barna“ er haldin í tilefni Barnamenningardaga á Suðurlandi.
Hverjir geta tekið þátt
- Keppnin er opin börnum og ungmennum á Suðurlandi
- Keppt er í þremur aldursflokkum:
- 5–8 ára / 9–12 ára / 13–17 ára
- Hver þátttakandi má senda inn allt að 3 ljósmyndir
Tæknileg atriði
- Myndir skulu vera stafrænar og í góðum gæðum
- Mælt er með JPG eða PNG formati.
- Lágmarks upplausn: ca. 2000 px á lengri hlið ef mögulegt er
- Skilafrestur er 12. apríl á osp@ry.is merkt „Ljósmyndakeppni“
- Bannað er að nota gervigreind til að búa til eða breyta myndum
Efni ljósmynda
- Myndirnar skulu tengjast Suðurlandi eða heimabyggð þátttakanda.
- Myndirnar mega sýna t.d. náttúru, daglegt líf, fólk, staði, leik, menningu eða eitthvað sem fangar athygli ljósmyndarans
Reglur keppninnar má skoða hér fyrir neðan:
