10. september 2025
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um forsíðumynd Goðasteins í ár. Myndefnið er alveg frjálst en æskilegt er að myndin sé úr héraði.
Myndin má vera á langsniði (landscape) og ná þá yfir forsíðu og baksíðu en einnig kemur til greina að velja tvær samhverfar myndir. Myndirnar má senda á godasteinnrit@gmail.com fyrir 20. september næstkomandi.